Körfubolti

Real Madrid Spánarmeistari í körfubolta

Leikmenn Real Madrid fagna titlinum
Leikmenn Real Madrid fagna titlinum AFP
Real Madrid tryggði sér í gærkvöld Spánarmeistaratitilinn í körfubolta með góðum útisigri á erkifjendunum í Barcelona 82-71. Real Madrid vann úrslitaeinvígið 3-1 og með því varð Joan Plaza aðeins þriðji þjálfarinn í sögu deildarinnar til að vinna titil á sínu fyrsta ári sem þjálfari. Það er því ekki ónýt stemming í Madrid þessa dagana eftir að körfuboltaliðið fetaði í fótspor knattspyrnuliðsins og tryggði sér titilinn.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×