Körfubolti

Milicic sektaður fyrir reiðilestur sinn á EM

Darko Milicic missti sig eftir að Serbar féllu úr leik á EM
Darko Milicic missti sig eftir að Serbar féllu úr leik á EM NordicPhotos/GettyImages

Framherjinn Darko Milicic hjá serbneska landsliðinu hefur verið sektaður um 10,000 evrur vegna grófra ummæla sem hann lét falla um dómarana eftir að Serbar töpuðu fyrir Grikkjum í riðlakeppninni og féllu úr leik. Viðtalið hefur nú lekið í fjölmiðla og er ekki hafandi eftir.

Forráðamenn Memphis Grizzlies í NBA deildinni hafa einnig sett sig í samband við leikmanninn og sagt honum að svona framkoma verði ekki liðin. Milicic hellti úr skálum reiði sinnar yfir blaðamann sem spurði hann út í leikinn skömmu eftir að flautað var af og kenndi dómurunum um allt saman. Hann sagði dómarana alla saman vitleysinga og notaði mjög gróf blótsyrði til að lýsa dómurunum, því sem hann ætlaði að gera við þá, mæður þeirra og dætur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×