Körfubolti

Spánverjar í úrslit á EM

Pau Gasol skoraði 23 stig og hirti 6 fráköst í liði heimsmeistaranna í kvöld
Pau Gasol skoraði 23 stig og hirti 6 fráköst í liði heimsmeistaranna í kvöld NordicPhotos/GettyImages
Spánverjar tryggðu sér í kvöld sæti í úrslitaleik Evrópumóts landsliða í körfubolta þegar liðið lagði Grikki 82-77 í undanúrslitum. Pau Gasol og Javier Navarro skoruðu 23 stig fyrir Spán og Jose Calderon 18, en Vasileios Spanoulis var langbestur í liði Grikkja með 24 stig og 5 stoðsendingar. Spánverjar mæta Rússum eða Litháum í úrslitum á morgun.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×