Körfubolti

Helena góð í tapi TCU

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Helena Sverrisdóttir í búningi Hauka.
Helena Sverrisdóttir í búningi Hauka.

Helena Sverrisdóttir átti góðan leik er lið hennar í háskólaboltanum í Bandaríkjunum, TCU, tapaði fyrir No. 5/5 LSU í nótt.

Leikmenn TCU nýttu aðeins 37% skotanna sinna utan af velli og töpuðu, 73-54. Aðalstjarna liðsins, Adrianne Ross, var stigahæst með fjórtán stig en næst kom Helena með níu stig.

Hún tók einnig sex fráköst, flest allra í liðinu. Hún nýtti þrjú af fimm skotum sínum utan af velli og annað þriggja stiga skota sinna. Helena nýtti hins vegar aðeinst tvö af fimm vítaköstum sínum. Hún lék í 32 mínútur í leiknum.

Leikurinn var liður í móti á undirbúningstímabilinu fyrir aðalkeppni vetrarins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×