Körfubolti

Logi með níu stig í sigurleik

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Logi í leik með íslenska landsliðinu.
Logi í leik með íslenska landsliðinu.

Farho Gijon, lið Loga Gunnarssonar í spænsku C-deildinni, vann í kvöld sigur á WTC Cornella, 82-62.

Logi var ekki í byrjunarliði Gijon en lék í sautján mínútur og skoraði á þeim níu stig, öll úr þriggja stiga körfum. Alls tók hann fimm skot utan þriggja stiga línunnar en tvö innan hennar. Hann gaf þar að auki eina stoðsendingu.

Gijon er sem stendur í fjórða sæti deildarinnar með tuttugu stig eftir ellefu leiki. Tvö önnur lið státa af sama árangri en á toppnum er CB Illescas Urban CLM með 21 stig. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×