Körfubolti

Helena og félagar töpuðu

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Helena Sverrisdóttir.
Helena Sverrisdóttir.

Helena Sverrisdóttir og félagar í TCU töpuðu í gær sínum fimmta leik á tímabilinu í bandaríska háskólaboltanum.

Liðið tapaði fyrir Rice-háskólanum, 82-74 á útivelli en TCU hefur tapað öllum sínum þremur leikjum á útivelli til þessa. Liðið hefur hins vegar unnið þrjá leiki á heimavelli en tapað tveimur.

Helena lék í 30 mínútur í leiknum en nýtti aðeins eitt skot í leiknum. Hún skoraði tvö stig en tók alls tíu skot í leiknum - fimm í teignum, fjögur þriggja stiga skot og eitt vítakast.

Hún tók hins vegar sjö fráköst og stal einum bolta.  




Fleiri fréttir

Sjá meira


×