Körfubolti

Siena ítalskur meistari

Siena tryggði sér í kvöld ítalska meistaratitilinn í körfubolta með 92-81 sigri á Lottomatica Roma í fimmta leik liðanna í lokaúrslitunum.

Siena vann því einvígið 4-1 og tapaði ekki leik á heimavelli alla leiktíðina. Jón Arnór Stefánsson lék 19 mínútur með liði Roma í kvöld og skoraði tvö stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×