Körfubolti

Slagsmál í WNBA (myndband)

Sá fáheyrði atburður átti sér stað í bandarísku kvennadeildinni í körfubolta í nótt að áflog brutust út í leik Detroit Shock og LA Sparks í Detroit.

Þremur leikmönnum og aðstoðarþjálfara Detroit var vísað úr húsi eftir átökin, sem brutust út eftir að Candace Parker hjá Sparks og Cheryl Ford lenti saman. Cheryl Ford er dóttir Karl Malone, fyrrum NBA leikmanns.

Smelltu hér til að sjá myndband af áflogunum.

Þegar er farið að tala um áflogin sem "Átökin í Palace 2" en fáir körfuboltaáhugamenn eru búnir að gleyma átökunum sem urðu í þessu sama húsi milli leikmanna Detroit Pistons og Indiana Pacers fyrir nokkrum árum.

Aðstoðarþjálfari Detroit Shock er enginn annar en Rick Mahorn, fyrrum NBA leikmaður og harðjaxl, en hann var enginn kórdrengur þegar hann spilaði í deildinni á sínum tíma. Aðalþjálfari Detroit er annar fyrrum leikmaður Detroit Pistons, Bill Laimbeer.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×