Körfubolti

Totti er heiðursgestur hjá Jóni Arnóri og Roma

Óskar Ófeigur Jónsson í Róm skrifar
Þekktasti og vinsælasti knattspyrnumaður Rómarborgar, Ítalinn Francesco Totti, hefur boðað komu sína á fjórða leik Lottomatica Roma og Montepaschi Siena sem fram fer í hinni glæsilegu Palalottomatica-höll í kvöld.

Lottomatica Roma verður að vinna því annars verður Siena meistari og það er greinilega öllu tjaldað til. Totti verður sérstakur heiðursgestur og situr við hlið fleiri fyrirmenna í heiðursstúkunni.

Totti hefur skorað 205 mörk í 507 leikjum með Roma-fótboltaliðinu og er bæði markahæsti og landsleikjahæsti leikmaðurinn í sögu félagsins en hann hefur spilað 58 landsleiki og skorað í þeim 9 mörk.

Totti er elskaður og fáður af stuðningsmönnum A.S. Roma og þar vegur þungt að hann er fæddur og uppalinn í Róm og hefur spilað með félaginu frá því hann var þrettán ára gamall.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×