Körfubolti

ESPN fjallar um Helenu

Elvar Geir Magnússon skrifar
Mynd/AP
Mynd/AP

Helena Sverrisdóttir hefur vakið mikla athygli með TCU í bandaríska háskólaboltanum. Í dag fjallaði vefmiðill ESPN um Helenu og frammistöðu hennar í vetur.

Helena hefur spilað frábærlega í nýju hlutverki sem fyrirliði og leikstjórnandi liðsins og á mikinn þátt í góðri spilamennsku TCU.

Í grein ESPN segir meðal annars að ekkert lið sé öruggt á meðan TCU hafi Helenu.

Smelltu hér til að lesa grein ESPN.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×