Körfubolti

Ermolinskij íhugar tilboð frá Spáni

Mynd/Róbert

Íslenski landsliðsmaðurinn Pavel Ermolinskij sem leikið hefur með Ciudad Huelva á Spáni er nú að íhuga nokkrar fyrirspurnir sem gerðar hafa verið í hann frá öðrum liðum.

Framtíð hins 21 árs gamla leikmanns er nokkuð óljós hjá Huelva og í samtali við karfan.is í dag sagðist Pavel vera að skoða tilboð frá fjórum liðum.

Pavel er væntanlegur til landsins á næstunni þar sem hann mun æfa með íslenska landsliðinu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×