Körfubolti

Portland vildi fá Jón Arnór

Mynd/Vilhelm

Lið Portland Trailblazers í NBA deildinni setti sig í samband við landsliðsmanninn Jón Arnór Stefánsson og vildi fá hann í hóp sinn fyrir sumardeildirnar. Þetta kemur fram á fréttavefnum karfan.is í dag.

Í samtali við karfan.is staðfesti Jón þetta, en sagðist ekki hafa haft tök á að fara í búðirnar.

Framtíð Jóns með ítalska liðinu Lottomatica Roma er óráðin, en ólíklegt er talið að hann verði hjá liðinu næsta vetur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×