Körfubolti

Jón Arnór á öllum auglýsingum fyrir leikinn

Óskar Ófeigur Jónsson í Róm skrifar
Jón Arnór Stefánsson er augljóslega andlit Lottomatica Roma liðsins út á við því hann var á öllum auglýsingum fyrir þriðja og fjórða leik Lottomatica Roma á móti Montepaschi Siena. Jón Arnór og Bandaríkjamaðurinn David Hawkins eru sem dæmi saman á áberandi auglýsingu í stærstu íþróttablöðum Ítalíu eins og Corriere dello Sport.

Jón Arnór er í stóru hlutverki hjá liðinu og er mikill leiðtogi inn á vellinum. Hann skoraði 8 stig í síðasta leik sem var það mesta sem hann hafði gert í úrslitakeppninni til þessa og spilaði auk þess frábæra vörn og af miklum íslenskum baráttuanda. Það er vonandi að fleiri taki hann til fyrirmyndar í leiknum í kvöld og fari að spila meira fyrir liðið.

Takist þjálfararnum Jasmin Repesa að sannfæra aðra leikmenn að láta boltan ganga og spila grimma vörn eins og Jón Arnór þá verður pottþétt fimmti leikur í einvíginu á fimmtudaginn kemur.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×