Körfubolti

Kirilenko verður fánaberi Rússa

AFP

Framherjinn Andrei Kirilenko hjá Utah Jazz og rússneska landsliðinu, verður fánaberi þjóðar sinnar á Ólympíuleikunum í Peking sem settir verða á föstudag. Kirilenko var í Ólympíuliði Rússa árið 2004 en liðið er ríkjandi Evrópumeistari í körfubolta.

Til greina kemur að Þjóðverjinn Dirk Nowitzki sem leikur með Dallas í NBA deildinni hljóti þennan sama heiður, en miðherjinn stóri Yao Ming verður fánaberi Kínverja á leiknum. Hann lýsti því yfir í dag að leikarnir nú yrðu hans síðustu fyrir þjóð sína.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×