Körfubolti

Logi með sjö stig í tapleik

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Logi Gunnarsson, leikmaður Gijon.
Logi Gunnarsson, leikmaður Gijon.

Logi Gunnarsson skoraði sjö stig þegar lið hans, Gijon, tapaði fyrir Axarquia á heimavelli í spænsku C-deildinni í körfubolta í gær.

Logi var ekki í byrjunarliðinu en lék í rúmar átján mínútur. Hann nýtti tvö af þremur skotum sínum úr vítateignum en eitt af fjórum þriggja stiga skotum sínum. Hann tók eitt frákast í leiknum.

Gijon tapaði þar með toppsætinu til Illescas Urban sem hefur unnið fjórtán leiki sína af sextán. Gijon hefur unnið þrettán leiki.

Þá tapaði Alerta Cantabria fyrir Villa de los Barrios í B-deildinni á föstudagskvöldið. Damon Johnson skoraði sjö stig í leiknum, tók þrjú fráköst og gaf eina stoðsendingu.

Alerta Bantabria er í fjórtánda sæti deildarinnar af samtals átján liðum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×