Körfubolti

Gríðarlega mikilvægur sigur Lottomatica Roma

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Jón Arnór lék ekki með sínum mönnum í kvöld vegna meiðsla.
Jón Arnór lék ekki með sínum mönnum í kvöld vegna meiðsla. Nordic Photos / AFP

Lottomatica Roma vann í kvöld sigur á Partizan Belgrad, 88-87, í framlengdum leik í Meistaradeild Evrópu í körfubolta í kvöld.

Jón Arnór Stefánsson lék ekki með Rómverjum í kvöld vegna meiðsla.

Fyrir leikinn í kvöld hefðu bæði lið unnið fjóra leiki í C-riðli keppninnar og hafði mikið að segja um hvort liðið myndi ná fimmta sæti riðilsins.

Fimm efstu liðin í hverjum riðli komast áfram í 16-liða úrslit ásamt því liði sem nær besta árangri af þeim liðum sem lenda í sjötta sæti sinna riðla.

Eftir sigurinn í kvöld er Lottomatica Roma í fimmta sæti C-riðils en Partizan í því sjötta þegar tvær umferðir eru eftir.

Jón Arnór og félagar eru því aðeins hársbreidd frá því að tryggja sér sæti í 16-liða úrslitunum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×