Hreiðar Levý eftirsóttur Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 6. febrúar 2008 14:43 Hreiðar Levý Guðmundsson í leik með Sävehof í haust.
Þó nokkur fjöldi liða hafa spurst fyrir um íslenska landsliðsmarkvörðinn Hreiðar Levý Guðmundsson sem leikur með Sävehof í sænsku úrvalsdeildinni í handbolta. Hreiðar segist ekki búast við öðru en að klára tímabilið hjá Sävehof en að tímabilinu loknu rennur samningur hans við liðið út. „Það hafa einhverjar þreifingar í gangi og Sävehof hefur fengið nokkrar fyrirspurnir," sagði Hreiðar við Vísi. „En þetta mál er ekki langt komið og fer maður fyrst að skoða þessi mál af alvöru þegar eitthvað er komið á pappír." Hann segir þó erfitt að meta það nú hvort hann muni framlengja samning sinn við Sävehof. „Það kemur þó vel til greina að spila hér í eitt ár í viðbót. Ég er mjög ánægður hér enda vilja allir hér allt fyrir mig gera. Ég spila líka nánast hverja einustu mínútu með liðinu sem er ekki verra." Hann neitar því þó ekki að þýska úrvalsdeildin heilli hann. „Ég stefni á að spila í Þýskalandi á næstu árum. En það fer líka eftir því hvaða félög sýna mér áhuga. Ég mun ekki hoppa á hvaða tilboð sem er." Hreiðar játar því að hann hafi bætt sig nú í vetur en hann hefur þótt standa sig afar vel með Sävehof. „Það gekk líka ágætlega hjá mér á EM í Noregi og nú þarf ég að halda áfram að klífa stigann." Aðspurður um sænsku deildina segir Hreiðar að hún sé eins sterk og hann bjóst við. „Þetta er ung deild með fullt af mjög góðum og efnilegum leikmönnum. Toppbaráttan er líka mjög jöfn og spennandi og geta í raun allir uninð alla." Sävehof er sem stendur í fjórða sæti sænsku úrvalsdeildarinnar, þremur stigum á eftir toppliðum Hammarby og Ystad.
Handbolti Mest lesið Guðmundur miður sín eftir stórtap: „Eitt það versta sem ég hef upplifað lengi“ Handbolti Ósætti við úrelta löggjöf: „Sennilega eina þjóðin eftir í heiminum“ Sport „Vil miklu frekar eiga feril í MMA heldur en að vinna skrifstofustarf“ Sport Tyson segist ekki berjast vegna peninganna Sport Víkingar spila á Íslandi í dagsbirtu Fótbolti Aðeins einn löglegur dúkur svo Valur og FH byrja saman í Krikanum Handbolti „Ein besta markvarsla sem ég hef séð“ Fótbolti Segir Leipzig hinn fullkomna áfangastað fyrir unga og efnilega leikmenn Fótbolti Slæm byrjun Vals hélt áfram í Garðabænum Handbolti Arftaki Kristjáns óvænt hættur Handbolti Fleiri fréttir Aðeins einn löglegur dúkur svo Valur og FH byrja saman í Krikanum Arftaki Kristjáns óvænt hættur Guðmundur miður sín eftir stórtap: „Eitt það versta sem ég hef upplifað lengi“ Elín Klara og Sara Sif sáu um Stjörnuna Slæm byrjun Vals hélt áfram í Garðabænum „Höfðum mýmörg tækifæri til að klára þennan leik miklu fyrr“ „Fyrst og fremst bara ekki nógu sáttur með mína menn“ Gísli Þorgeir bar af í Íslendingaslag kvöldsins Haukar áfram á toppnum með fullt hús stiga Fram áfram með fullt hús Bjarki Már og Orri Freyr með stórsigra í Meistaradeildinni Uppgjörið: FH - ÍBV 33-30 | Góður kafli í fyrri hálfleik skilaði sigri FH-inga Framarar flæktir í óskýrum reglum HSÍ: „Þetta er alveg galið dæmi“ Haukur komið að nítján mörkum í fyrstu tveimur leikjunum í Meistaradeildinni Selfoss átti lítið í Íslandsmeistara Vals „Stefnum á að vera í þessum efri hluta“ Uppgjörið: ÍR - ÍBV 22-22 | Heimakonur komnar á blað Haukur magnaður í sigri á Viktor Gísla og félögum Alfa Brá og Katrín Anna í landsliðið Tímabilið byrjar vel hjá Bjarka sem varð markahæstur í stórsigri Gummersbach gaf mikið eftir í seinni hálfleik Íslendingaliðið byrjar vel í titilvörninni Rakel Dögg: Lokuðum vel varnarlega og Alfa skildi liðin að sóknarlega Uppgjörið: Fram - Haukar 27-26 | Heimakonur unnu æsispennandi leik Fyrsti sigurinn hjá bæði Stjörnukonum og Framkörlum Segir að Haukur Þrastar geti gert mikið fyrir íslenska landsliðið á HM í janúar Stjarnan sótti ekki gull í greipar Eyjamanna „Þurfum að vera fljótir að læra“ Valur ekki í vandræðum í Vestmannaeyjum Íslenskt markaflóð í Svíþjóð Sjá meira