Körfubolti

Helena með tvöfalda tvennu í sigri TCU

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Helena í leik með TCU.
Helena í leik með TCU. Mynd/TCU/Keith Robinson

Helena Sverrisdóttir náði sinni fyrstu tvöfaldri tvennu á ferlinum í bandaríska háskólaboltnum er hún skoraði fjórtán stig og tók ellefu fráköst í sigri TCU á BYU, 73-54, í nótt.

TCU hefur nú unnið þrettán leiki á tímabilinu en tapað níu. Þetta var jafnframt þriðji sigurleikur liðsins í röð.

Helena hitti úr sex af tólf skotum sínum utan af velli auk þess sem hún gaf þrjár stoðsendingar og stal einum bolta. Hún lék í 24 mínútur í leiknum.

„Við ræddum það fyrir leik að við þurftum að vera duglegar í fráköstunum," sagði Helena við heimasíðu skólans. „Ég hugsaði um leikinn í allan dag og sagði sjálfri mér að ég þyrfti að ná nokkrum fráköstum til að liðið kæmist á gott skrið."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×