Körfubolti

Jakob með þrettán stig í sigurleik Univer KSE

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Jakob í leik með íslenska landsliðinu.
Jakob í leik með íslenska landsliðinu.

Jakob Örn Sigurðarson skoraði þrettán stig er lið hans, Univer KSE, vann sigur á Soproni Sördögök, 107-89, í ungversku úrvalsdeildinni í gær.

Jakob hitti úr fjórum af níu skotum sínum utan af velli, þar af einu af fjórum þriggja stiga skotum. Hann nýtti fjögur af sex vítaköstum, tók tvö fráköst, stal fjórum boltum og gaf þrjár stoðsendingar á þeim 32 mínútum sem hann lék í leiknum.

Univer KSE er í áttunda sæti deildarinnar en liðið hefur unnið átta leiki og tapað átta á tímabilinu.

Falco KC Szombathely er á toppi deildarinnar með fimmtán sigurleiki í sautján leikjum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×