Sport

Ronaldo er ekki búinn

Nordic Photos / Getty Images

Læknar AC Milan segja alls ekki útilokað að framherjinn Ronaldo geti snúið til baka eftir hnémeiðslin sem hann varð fyrir í gærkvöld - og talið var að gætu bundið enda á feril hans.

Pierre Meersman, fyrlæknir hjá Milan, segir að bylting í hnéaðgerðum á síðustu árum þýði að leikmaðurinn geti vel náð bata á ný.

"Ronaldo bað sjáfur um að fá að gangast undir hnífinn í París þar sem hann fór í endurhæfingu fyrir átta árum síðan," sagði Meeserman. "Aðgerðin heppnaðist vel fyrir átta árum síðan og síðan hefur tækninni farið mikið fram."

Pietro Volpi, fyrrum læknir Inter Milan, sem þekkir vel til Ronaldo síðan hann annaðist leikmanninn á sínum tíma, er líka bjartsýnn.

"Þetta eru erfið meiðsli, en það er hægt að vinna bug á þeim. Tæknin í skurðaðgerðum á borð við þessa er alltaf að verða betri og betri. Hann á eflaust eftir að þurfa átta til tíu mánuði til að jafna sig, en ég er ekki svartsýnn á að hann nái fullum bata. Aðal málið er að hann er talsvert eldri en hann var árið 2000, þannig að hann verður lengur að ná í toppform á ný," sagði Volpi.

Silvio Berusconi, forseti Milan, er líka bjartsýnn á framtíð leikmannsins. "Ég talaði við hann í síma í gær og sagði honum að hafa trú á sjálfum sér. Hann er enn bara 31 árs gamall og ég held að hann verði aftur meistari eftir nokkra mánuði frá keppni. Allir knattspyrnuáhugamenn óska þess heitt," sagði forsetinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×