Körfubolti

Helena með 24 stig í sigri TCU

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Helena Sverrisdóttir, leikmaður TCU.
Helena Sverrisdóttir, leikmaður TCU. Mynd/TCU/Keith Robinson
Helena Sverrisdóttir átt enn einn stórleikinn í liði TCU sem lagði New Mexico í framlengdum leik í gær, 59-51.

Hún skoraði 24 stig, tók níu fráköst og var einn besti leikmaður liðsins.

Helena hitti úr tíu af fimmtán skotum utan af velli, þar af eitt af þremur þriggja stiga skotum. Hún nýtti þó ekki nema þrjú af sjö vítaköstum sínum.

Hún gaf tvær stoðsendingar, stal tveimur boltum, varði tvö skot og tapaði tveimur boltum á þeim 38 mínútum sem hún lék í leiknum.

Helena var einnig langstigahæst á vellinum en næsti leikmaður var með sextán stig.

TCU hefur nú unnið níu leiki af ellefu í sinni deild og er á góðri leið með tryggja sig áfram í næstu umferð.

„Ég hljóp mikið og fékk boltann oft. Mér fannst við ná vel saman í síðari hálfleik og lékum saman sem ein liðsheild," sagði Helna í samtali við heimasíðu TCU.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×