Körfubolti

Helena aftur í liði vikunnar

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Helena Sverrisdóttir, leikmaður TCU.
Helena Sverrisdóttir, leikmaður TCU. Mynd/TCU/Keith Robinson
Helena Sverrisdóttir var valin í lið vikunnar í MWC-deildinni í bandaríska háskólaboltanum, aðra vikuna í röð.

Helena hefur farið á kostum í undanförnum leikjum en lið hennar, TCU, hefur unnið sex leiki í röð. Helena skoraði 24 stig í síðasta leik sem var persónulegt met hjá henni.

Hún skoraði 16,5 stig að meðaltali í þeim tveimur leikjum sem hún spilaði í síðustu viku. Hún tók 10,5 fráköst og gaf 3 stoðsendingar að meðaltali.

Helena hefur skorað flest stig (13,3 að meðaltali) og tekið flest fráköst (7,6) í þessum sex sigurleikjum liðsins. Hún er einnig með flestar stoðsendingar fyrir hvern tapaðan bolta eða 2,6 talsins að meðaltali.

Helena er eini nýliðinn í deildinni sem kemst á lista yfir flest stig skoruð, flest fráköst og flestar stoðsendingar.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×