Körfubolti

Jakob stigahæstur í tapleik

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Jakob í leik með íslenska landsliðinu.
Jakob í leik með íslenska landsliðinu.
Jakob Örn Sigurðarson skoraði 23 stig er lið hans, Univer KSE, tapaði fyrir Marso-Vagép í ungversku úrvalsdeildinni í körfubolta í gær.

Síðarnefnda liðið var með eins stigs forystu í hálfleik, 41-40 en tók svo öll völd í síðari hálfleik og vann að lokum með fjórtán stiga mun, 89-75.

Jakob var stigahæstur í sínu liði en hann lék allar 40 mínúturnar í leiknum.

Hann hitti einstaklega vel í leiknum, úr sjö af átta tveggja stiga skotum og tveimur af fimm þriggja stiga skotum. Hann nýtti öll þrjú vítaköstin sín.

Hann tók þar að auki fjögur fráköst, gaf þrjár stoðsendingar og stal þar að auki þremur boltum.

Univer er enn í áttunda sæti deildarinnar en liðið hefur unnið helming leikjanna sinna átján. Marso-Vagép er í fimmta sæti með ellefu sigurleiki af nítján leiknum.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×