Körfubolti

Garnett yfir 20 þúsund stig

Elvar Geir Magnússon skrifar
Kevin Garnett.
Kevin Garnett.

Kevin Garnett skoraði sautján stig fyrir Boston síðustu nótt þegar liðið vann Memphis 119-89. Þar með hefur Garnett skorað yfir 20 þúsund stig í NBA-deildinni en aðeins 32 leikmenn hafa afrekað það.

Þrír aðrir leikmenn sem eru að spila í NBA-deildinni í dag hafa skorað yfir 20 þúsund stig en það eru Shaquille O´Neal, Allen Iverson og Kobe Bryant.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×