Körfubolti

Frábær sigur Lottomatica á Barcelona

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Jón Arnór í leik með Lottomatica Roma.
Jón Arnór í leik með Lottomatica Roma. Nordic Photos / AFP

Jón Arnór Stefánsson skoraði átta stig er Lottomatica Roma vann frábæran sigur á Barcelona á heimavelli, 68-63, í Meistaradeild Evrópu í kvöld.

Jón Arnór lék í 20 mínútur í leiknum og auk þess að skora átta stig tók hann þrjú fráköst, stal tveimur boltum og varði eitt skot.

Lottomatica var með þriggja stiga forystu í hálfleik, 33-30, en Börsungar höfðu fjögurra stiga forystu þegar síðasti leikhlutinn hófst. Þá tóku Rómverjar öll völd á vellinum og unnu leikhlutann með níu stiga mun, og samtals 68-63.

CSKA Moskva vann Unicaja í hinum leik kvöldsins í riðlinum og er þar með búið að tryggja sér sæti í fjórðungsúrslitum keppninnar.

Hin liðin þrjú í riðlinum - Lottomatica, Barcelona og Unicaja hafa öll unnið tvo leiki en tapað þremur til þessa í riðlinum.

Í lokaumferðinni tekur Barcelona á móti CSKA Moskvu en Lottomatica mætir Unicaja á útivelli.

Tvö efstu liðin í riðlinum komast áfram í fjórðungsúrslit.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×