Körfubolti

TCU tapaði í undanúrslitum

Helena Sverrisdóttir og stöllur hennar í bandaríska háskólaliðinu TCU þurftu að sætta sig við tap gegn San Diego í undanúrslitum Mountain West deildarinnar í nótt 69-67 í hörkuleik.

Helena var í byrjunarliðinu og var stigahæst í liðinu með 12 stig og sex fráköst. TCU var yfir mest allan leikinn en San Diego hafði betur á lokasprettinum.

Liðið hafði unnið fimm síðustu leiki sína og endaði með 21 sigur og 11 töp í vetur. Ekki er þó útséð með að liðið komist í NCAA keppnina áttunda árið í röð en tilkynnt verður um hvaða lið komast þangað á mánudagskvöldið.

Eftir að hafa unnið 16 af síðustu 19 leikjum sínum var TCU komið í 49. sæti á styrkleikalista háskólaliða.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×