Körfubolti

Roma í vondum málum

Lottomatica Roma, lið Jóns Arnórs Stefánssonar í ítölsku úrvalsdeildinni í körfubolta, tapaði í kvöld þriðja leik sínum gegn Siena í úrslitaeinvígi deildarinnar. Siena hefur því yfir 3-0 í rimmunni og þarf aðeins einn sigur til viðbótar til að tryggja sér titilinn.

Lottomatica hafði 12 stiga forystu í hálfleik í kvöld en gestirnir hresstust heldur betur í þeim síðari og unnu að lokum 80-72 sigur.

Jón Arnór skoraði 8 stig fyrir Roma á 25 leikmínútum í kvöld.

Fjórði leikur liðanna fer fram í Róm á þriðjudagskvöldið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×