Handbolti

Frakkar í undanúrslit

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Leikmenn Frakka fagna sigrinum í morgun.
Leikmenn Frakka fagna sigrinum í morgun. Nordic Photos / AFP

Frakkland er komið í undanúrslit í keppni í handbolta karla á Ólympíuleikunum í Peking eftir sigur á Rússum í fjórðungsúrslitum.

Frakkar höfðu þriggja marka forystu í hálfleik, 13-10, og létu forystuna aldrei af hendi. Rússar komust reyndar nærri því að jafna er þeir skoruðu fjögur mörk í röð þegar um tíu mínútur voru til leiksloka og minnkuðu metin í eitt mark, 22-21.

En þá komu þrjú frönsk mörk í röð og Frakkar fögnuðu þriggja marka sigri, 27-24.

Daniel Narcisse var markahæstur í franska liðinu með níu mörk og Luc Abalo skoraði sjö. Eduard Koksharov skoraði fimm fyrir Rússa og Alexander Chernoivanov fjögur.

Frakkar mæta annað hvort Dönum eða Króötum í undanúrslitum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×