Henning: Spiluðu eins og ég vissi að þær gætu Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 26. ágúst 2009 23:18 Henning Henningsson, landsliðsþjálfari.
Henning Henningsson, landsliðsþjálfari, sagði leikmenn íslenska landsliðsins hafa loksins sýnt sitt rétta andlit er liðið vann sigur á Írlandi í kvöld, 77-68, í B-deild EM í körfubolta kvenna. Þetta var annar sigur liðsins í riðlinum og sá fyrsti undir stjórn Hennings sem tók við liðinu í vor. Hann hafði stefnt að sigri í þremur af fimm leikjum liðsins í núverandi törn en liðið hefur nú unnið einn af fjórum. Lokaleikur liðsins í riðlinum verður gegn Svartfjallalandi á laugardaginn. „Þær spiluðu eins og ég vissi að þær gætu gert," sagði Heninng eftir leikinn í kvöld. „Við náðum að halda haus allan tímann sem skiptir miklu máli því þessi lið eru fljót að refsa fyrir mistökin okkar. Það sýndi sig í leiknum gegn Slóveníu ytra um helgina hversu dýrkeypt það getur verið," sagði Henning. Ísland var með forystu í upphafi síðari hálfleiksins í þeim leik en Slóvenar gerðu út um hann með 19-0 spretti á stuttum leikkafla í þriðja leihkluta. „En í kvöld hleyptum við þeim aldrei upp að körfunni og þær náðu aldrei að stilla sína strengi," bætti hann við. Helena Sverrisdóttir var tæp fyrir leikinn þar sem hún fékk högg á síðuna í leiknum gegn Slóveníu. „Hún átti gríðarlega góðan leik. Hún var vissulega ekki heil en breytti bara leik sínum í kvöld. Hún skilaði sínu mjög vel í kvöld." Birna Valgarðsdóttir var stigahæst í íslenska liðinu með 21 stig auk þess sem hún tók ellefu fráköst. „Birna skilaði bæði stórum tölum auk þess sem hún hélt atkvæðamesta leikmanni Íra í örfáum stigum. Hún átti stjörnuleik sem okkur munaði svo sannarlega um." „En ég var mjög sáttur við allt liðið. Ég er virkilega ánægður með að þær skyldu stíga upp og sýna sitt rétta andlit. Nú er bara einn leikur eftir og þurfum við helst að vinna hann enda skemmtilegra að vinna leiki en tapa þeim."
Körfubolti Mest lesið Bein útsending: Bakgarðshlaupið í Heiðmörk Sport McGregor fær ekki keppinaut fyrr en hann er leikfær á ný Sport „Átum þá lifandi í fyrri hálfleik“ Enski boltinn Norris á ráspól í Singapúr Formúla 1 Fínn leikur Íslendinganna í Þýskalandi dugði ekki til Handbolti „Það hlaut að koma að því“ Íslenski boltinn Setja pressu á Barcelona með sigri Fótbolti Jafnt hjá PSG og Galatasaray vann stórleikinn í Tyrklandi Fótbolti Uppgjörið: KA bikarmeistari í fyrsta sinn Íslenski boltinn „Ekki jafn auðvelt og lokatölurnar gáfu til kynna“ Enski boltinn Fleiri fréttir Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Skýtur af lengra færi en bestu NBA strákarnir Vonarstjarna ÍR til Bandaríkjanna Morris spilar með Grindavík í vetur Golden State hetjan Al Attles látin Frábærir þrír leikhlutar ekki nóg á móti Bretum Kallaði Kevin Durant veikgeðja Lykilmenn Íslandsmeistaranna framlengja samninga sína Sjá meira