Körfubolti

Helena og félagar unnu sterkt lið Kansas

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Helena Sverrisdóttir í leik með TCU.
Helena Sverrisdóttir í leik með TCU. Mynd/TCU/Keith Robinson

Helena Sverrisdóttir og félagar í TCU-háskólaliðinu unnu afar góðan sigur á Kansas á fjögurra liða móti sem var haldið á Bahama-eyjunum um helgina.

Kansas er meðal sterkustu háskólaliða Bandaríkjanna en TCU vann upp sex stiga forskot liðsins á síðustu rúmum tveimur mínútum leiksins og vann svo fimm stiga sigur, 74-69.

Helena lék í 22 mínútur og skoraði á þeim tíma sex stig, tók þrjú fráköst, gaf tvær stoðsendingar og stal tveimur boltum.

Þar með varð TCU í þriðja sæti mótsins en liðið hefur nú unnið fjóra af sex leikjum sínum til þessa á tímabilinu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×