Körfubolti

Helena aftur stigahæst í sigri TCU

Mynd/Heimasíða TCU

Helena Sverrisdóttir heldur áfram að spila eins og engill fyrir lið sitt TCU í bandaríska háskólaboltanum.

Helena skoraði 19 stig og varð stigahæst í nótt þegar TCU bar sigurorð af Colorado háskólans 71-59.

Helena hirti auk þess sjö fráköst, var með fína skotnýtingu og hefur nú sett niður 31 vítaskot í röð eftir að hafa hitt úr öllum fjórum vítunum sínum í nótt.

TCU hefur unnið 14 leiki og tapað 8.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×