Körfubolti

Gamla liðið hans Jóns Arnórs úr leik - í 1. umferð

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Ibrahim Jaaber er einn af fáum leikmönnum Lottomatica sem voru með í fyrra.
Ibrahim Jaaber er einn af fáum leikmönnum Lottomatica sem voru með í fyrra. Mynd/AFP

Lottomatica Roma féll í gær út úr 8 liða úrslitum ítölsku úrvalsdeildarinnar í körfubolta eftir 79-83 tap fyrir Angelico Biella í oddaleik á þeirra eigin heimavelli í PalaLottomatica-höllinni.

Þetta er mjög óvænt úrslit því Lottomatica Roma lenti í 2. sæti deildarinnar og vann fimm leiki fleiri á tímabilinu en Angelico Biella sem endaði í 7. sæti.

Það er ekki hægt að sjá annað en Lottomatica Roma sakni okkar manns en liðið fór alla leið í úrslitin með hann innanborðs í fyrravetur.

Jón Arnór og félagar í Benetton Treviso spila sinn oddaleik á móti La Fortezza Bologna í kvöld.


















Fleiri fréttir

Sjá meira


×