Körfubolti

Helena náði sínu 500. frákasti

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Helena Sverrisdóttir í leik með TCU.
Helena Sverrisdóttir í leik með TCU. Mynd/AP
Helena Sverrisdóttir náði merkum áfanga þegar að háskólalið hennar, TCU, vann auðveldan sigur á Sam Houston í dag, 83-65.

Helena lék þó aðeins í fjórtán mínútur en náði á þeim tíma að skora fjögur stig, taka átta fráköst og gefa fjórar stoðsendingar.

Hún náði sínu 500. frákasti á ferlinum með TCU og er aðeins níundi leikmaður liðsins frá upphafi sem kemst í þann hóp.

Þetta var áttundi sigur TCU á tímabilinu en liðið hefur alls spilað ellefu leiki.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×