Körfubolti

Helena setti persónulegt met í tapleik

Mynd/Heimasíða TCU

Helena Sverrisdóttir setti persónulegt met í nótt þegar hún skoraði 27 stig fyrir lið sitt TCU í bandaríska háskólaboltanum, en það nægði liðinu ekki þegar það tapaði 73-63 fyrir Utah á útivelli.

TCU var níu stigum yfir í fyrri hálfleik eftir að hafa hitt úr öllum sjö skotum sínum, en nýtti aðeins eitt af tíu í þeim síðari.

Helena var langatkvæðamest í liði TCU með 27 stig, 9 fráköst og 4 stoðsendingar. TCU hefur unnið 13 leiki og tapað 8 í háskólaboltanum.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×