Körfubolti

Helena enn og aftur með tvöfalda tvennu

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Helena í leik með TCU.
Helena í leik með TCU. Mynd/TCU/Keith Robinson
Helena Sverrisdóttir átti enn einn stórleikinn fyrir TCU í bandarísku háskóladeildinni í körfubolta í gærkvöldi. Liðið vann þá sigur á Utah, 53-47, í lokaleik deildakeppninnar.

Utah komst þrettán stigum yfir í fyrri hálfleik en TCU náði yfirhöndinni í þeim síðari, ekki síst vegna frammistöðu Helenu sem skoraði 20 stig í leiknum og tók þar að auki tíu fráköst.

Þetta var í áttunda skiptið á tímabilinu sem hún náði tvöfaldri tvennu en hún var stigahæst leikmanna TCU í leiknum.

TCU vann 20 af 29 leikjum sínum á tímabilinu í Mountain West-deildinni en það er í áttunda skiptið á síðustu níu árum sem liðið vinnur minnst 20 leiki fyrir úrslitakeppnina.

Framundan er úrslitakeppni deildarinnar í Las Vegas. Það fer eftir úrslitum annarra leikja hvort TCU nær öðru eða þriðja sæti deildarinnar en úrslitakeppnin hefst á miðvikudaginn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×