Körfubolti

Evrópumeistarar Rússa byrja á sigri - kaninn góður í lokin

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Kelly McCarty spilar nú með rússneska landsliðinu.
Kelly McCarty spilar nú með rússneska landsliðinu. Mynd/AFP

Evrópumeistarar Rússa unnu 81-68 sigur á Lettum í fyrsta leik sínum á EM í körfu í Póllandi sem hófst í dag. Nýi Bandaríkjamaðurinn í liði Rússa, Kelly McCarty, skoraði 8 af 24 stigum sínum á síðustu fjórum mínútum leiksins þegar Rússar gerðu út um leikinn eftir að Lettar höfðu minnkað muninn í tvö stig, 65-63.

McCarty var með 9 fráköst og 3 stoðsendingar auk stiganna 24 en næststigahæstur í liði Rússa var Sergei Bykov með 22 stig. Þeir hittu saman úr 7 af 10 þriggja stiga skotum sínum.

NBA-leikmaðurinn Andris Biedrins fann sig ekki hjá Lettum og var aðeins með 6 stig og 6 fráköst. Kaspars Kambala var stigahæstur Letta með 22 stig en hann spilar einmitt í rússnesku deildinni.

Grikkir unnu á sama tíma öruggan 32 stiga sigur á Makedóníumönnum, 86-54, þar sem Vasileios Spanoulis var stigahæstur með 17 stig.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×