Körfubolti

Jón Arnór og félagar mæta Bologna

Jón Arnór í leik með íslenska landsliðinu í fyrra
Jón Arnór í leik með íslenska landsliðinu í fyrra

Benetton Treviso, lið Jóns Arnórs Stefánssonar í ítölsku úrvalsdeildinni í körfubolta, vann í gær útisigur á Bologna 90-85 sem tryggði liðinu fjórða sætið í deildarkeppninni.

Svo skemmtilega vill til að það verður einmitt Bologna sem verður andstæðingur Benetton í úrslitakeppninni. Jón Arnór skoraði tvö stig í sigri Benetton í gær.

Úrslitakeppnin hefst á fimmtudaginn.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×