Körfubolti

Vonast til að Jón Arnór verði áfram með liðinu á næsta tímabili

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Jón Arnór Stefánsson með treyjuna sem hann mun spila í hjá Benetton.
Jón Arnór Stefánsson með treyjuna sem hann mun spila í hjá Benetton. Mynd/Heimasíða Benetton

Jón Arnór Stefánsson var kynntur til leiks sem leikmaður Benetton Basket Treviso í dag og á heimasíðu liðsins má finna viðtöl frá blaðamannafundinum.

„Við erum með marga leikmenn í meiðslum og Jón mun hjálpa okkur mikið. Hann getur spilað þrjár stöður sem mun hjálpa mikið með breiddina í liðinu," sagði Maximum Iacopini aðstoðarframkvæmdastjóri Benetton-liðsins á blaðamannfundinum.

„Hann er barráttuglaður leikmaður sem kemur með mikla orku inn í liðið auk þess að hann er með mjög gott skot og kann leikinn vel. Jón er líka góður varnarmaður og við vonumst til að hann verði lengur hjá Treviso en bara út þetta tímabil," bætti Iacopini við.

Jón Arnór sjálfur svaraði líka spurningum blaðamanna auk þess að láta mynda sig með peysu númer sex.

„Ég er mjög ánægður með að vera kominn hingað og ég er í mjög góðu formi eftir að hafa nýlokið tímabilinu með KR. Ég geri mér vel grein fyrir að þetta er miklu sterkari deild en sú íslenska en ég er tilbúinn í þetta ævintýri," sagði Jón Arnór á fundinum.

Hann var spurður út í komandi úrslitakeppni. „Siena-liðið er áfram sigurstranglegast en það eru mörg lið sem ætla sér mikið í ár og þetta verður vonandi áhugaverð úrslitakeppni. Það væri mjög gaman að mæta mínum gömlu félögum í Lottomatica enda ekkert skemmtilegra en að slá út sitt gamla lið," sagði Jón Arnór á blaðamannafundinum.

„Ég er að fara á mína fyrstu æfingu og á eftir að kynnast strákunum í liðinu betur. Ég þekki samt Domen Lorbek af því að ég spilað með bróður hans í Róm," sagði Jón Arnór sem mun spila sinn fyrsta opinbera leik 7. maí en á föstudaginn klæðist hann þó búningnum í fyrsta sinn í æfingaleik á móti Ferrara ad Este.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×