Körfubolti

Helena með tvöfalda tvennu í tapi TCU

Ómar Þorgeirsson skrifar
Helena Sverrisdóttir.
Helena Sverrisdóttir. Mynd/TCU

Helena Sverrisdóttir og félagar í TCU töpuðu sínum fyrsta leik á tímabilinu í Háskólaboltanum í Bandaríkjunum í nótt þegar liðið beið lægri hlut gegn Oklahoma en lokatölur urðu 74-70.

Helena átti góðan leik fyrir TCU og náði tvöfaldri tvennu þar sem hún skoraði 14 stig og tók 10 fráköst en hún stal boltanum einnig 5 sinnum og átti 4 stoðsendingar.

Starr Crawford var stigahæst hjá TCU með 19 stig en hún tók einnig 13 fráköst.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×