Körfubolti

Helgi Már rólegur í níunda sigri Solna Vikings í röð

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Helgi Már Magnússon.
Helgi Már Magnússon. Mynd/Vilhelm

Helgi Már Magnússon og félagar í Solna Vikings unnu góðan 11 stig útisigur á Gothia Basket í sænsku úrvalsdeildinni í gærkvöldi og halda því áfram sigurgöngunni og toppsæti deildarinnar. Þetta var níundi sigur Solna Vikings í röð en liðið hefur ekki tapað síðan 20. október.

Helgi Már var rólegur í gær en hann var með 3 stig og 1 stoðsendingu á 15 mínútum. Litháinn Saulius Dumbliauskas var stigahæstur með 20 stig auk þess að taka 12 fráköst og þeir Lesli Myrthil og Andrew Mitchell skoruðu báðir 19 stig.

Solna Vikings tapaði síðast á móti Plannja Basket á útivelli 20. október en liðið fær tækifæri til að hefna fyrir það tap þegar Plannja-menn koma í heimsókn í Solnahallen á föstudaginn kemur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×