Handbolti

Þórir fékk brons í Kína

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Norðmenn fagna bronsinu í morgun.
Norðmenn fagna bronsinu í morgun. Nordic Photos / AFP

Noregur vann í dag Spán, 31-26, í leik um þrijða sætið á heimsmeistaramótinu í handbolta kvenna sem haldið er í Kína. Þórir Hergeirsson er þjálfari norska landsliðsins.

Staðan var 15-9, Noregi í vil í hálfleik. Marit Malm Frafjord skoraði flest mörk Norðmanna eða sjö talsins.

Frakkar og Rússar eigast við í úrslitaleik mótsins. Þar var staðan 14-11 í hálfleik, Rússum í vil. Leikurinn er í beinni útsendingu á Rúv.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×