Körfubolti

Jón Arnór með tíu stig í tapi Benetton

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Jón Arnór Stefánsson.
Jón Arnór Stefánsson. Nordic Photos/AFP

Það varð ljóst í kvöld að Benetton Treviso og La Fortezza Bologna þurfa að mætast í oddaleik í úrslitakeppni ítalska körfuboltans.

Bologna jafnaðu metin í kvöld með öruggum sigri, 99-78. Staðan í einvíginu því 2-2.

Jón Arnór Stefánsson átti fínan leik í liði Benetton en hann var með tíu stig og þrjár stoðsendingar.

Jón setti niður tvö af fjórum þriggja stiga skotum sínum, eitt af þremur tveggja stiga skotum og bæði vítaskot sín.

Jón Arnór lék þess utan mest allra í liði Benetton í kvöld eða í 27 mínútur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×