Körfubolti

Stórleikur Jakobs Arnar dugði Sundsvall ekki til sigurs

Ómar Þorgeirsson skrifar
Jakob Örn Sigurðarson.
Jakob Örn Sigurðarson. Mynd/Vilhelm

Íslendingarnir Jakob Örn Sigurðarson og Helgi Már Magnússon voru í eldlínunni með liðum sínum í sænsku úrvalsdeildinni í körfubolta í kvöld.

Jakob Örn fór á kostum með Sundsvall Dragons og skoraði 24 stig en það nægði liðinu hins vegar ekki til sigurs þar sem það beið lægri hlut 74-77 gegn Norrkoping Dolphins.

Helgi Már Magnússon skoraði 10 stig og tók 5 fráköst í 73-91 sigri Solna Vikings gegn Stockholm.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×