Fótbolti

Þrír frá Barca og tveir frá Real tilnefndir

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Lionel Messi og Andrés Iniesta eftir að Barcelona vann Manchester United í úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu.
Lionel Messi og Andrés Iniesta eftir að Barcelona vann Manchester United í úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu. Nordic Photos / AFP

Alþjóða knattspyrnusambandið hefur gefið út hvaða fimm leikmenn fengu flest atkvæði í kjöri landsliðsþjálfara og -fyrirliða á leikmanni ársins sem nú er að líða.

Athygli vekur að allir fimm leikmennirnir leika nú á Spáni - tveir með Real Madrid og þrír með Barcelona.

Leikmennirnir hjá Real voru þó keyptir til félagsins í sumar. Cristiano Ronaldo kom frá Manchester United og Brasilíumaðurinn Kaka frá AC Milan.

Hinir sem eru tilnefnir eru þeir Lionel Messi, Xavi og Andrés Iniesta - allir leikmenn Barcelona. Messi er Argentínumaður og hlaut á dögunum Gullknöttinn fyrir að vera kjörinn leikmaður ársins í Evrópu. Hann þykir líklegastur til að verða einnig efstur í kjöri FIFA.

Hjá konunum fengu þær Marta (Brasilíu), Cristiane (Brasilíu), Inka Grings (Þýskalandi), Birgit Prinz (Þýskalandi) og Kelly Smith (Englandi) flest atkvæði.

Niðurstaða kjörsins verður kynnt í Zürich í Sviss þann 21. desember næstkomandi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×