Körfubolti

Serbía og Spánn leika til úrslita á EM í körfubolta

Ómar Þorgeirsson skrifar
Leikmenn Serba fagna eftir dramatískan sigur gegn Slóveníu.
Leikmenn Serba fagna eftir dramatískan sigur gegn Slóveníu. Nordic photos/AFP

Leikið var í undanúrslitum á EM í körfubolta í Póllandi í gær. Spánn vann 82-64 sigur gegn Grikklandi og Serbía vann 96-92 sigur gegn Slóveníu í framlengdum leik.

Það verða því Serbía og Spánn sem leika til úrslita en leikurinn fer fram í kvöld og hefst kl. 19.15 að íslenskum tíma.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×