Körfubolti

Helena tryggði TCU sigurinn

Helena Sverrisdóttir reyndist liði sínu dýrmæt í lokin í gærkvöld þegar liðið vann nauman útisigur á Wyoming 81-78 í bandarísku háskóladeildinni.

Helena skoraði 21 stig úr aðeins átta skottilraunum í leiknum og setti niður öll sex vítaskot sín á síðustu rúmu mínútunni þar sem TCU hékk á sigrinum.

Helena var stigahæst í liði sínu með 21 stig og hirti auk þess átta fráköst og gaf 6 stoðsendingar. Þetta var fjórði leikur Helenu með 20 stig eða meira á leiktíðinni.

TCU hefur unnið tólf sigra og tapað sex leikjum það sem af er leiktíðar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×