Barcelona tapaði - Real með stórsigur 21. febrúar 2009 20:56 Higuain fagnar opnunarmarki Real í kvöld AFP
Þremur leikjum er lokið í spænsku deildinni í knattspyrnu í kvöld. Barcelona tapaði 2-1 á heimavelli fyrir grönnum sínum í Espanyol, sem fyrir vikið lyftu sér af botninum. Seydou Keita var rekinn af velli í liði Barcelona á 38. mínútu og eftir markalausan fyrri hálfleik, skoraði Iván De la Peña tvívegis fyrir heimamenn með fjögurra mínútna millibili þegar skammt var liðið á þann síðari. Yaya Toure náði að minnka muninn fyrir Barcelona á 62. mínútu, en lengra komust Börsungar ekki og máttu sætta sig við annað tap sitt á leiktíðinni - það fyrsta síðan í fyrstu umferð deildarinnar. Eiður Smári Guðjohnsen var á varamannabekk Barcelona í kvöld og kom inn sem varamaður eftir rúmlega klukkutíma leik fyrir Samuel Eto´o. Sjö mörk í fyrri hálfleik á Bernabeu Real Madrid er á mikilli siglingu og í kvöld vann liðið 6-1 stórsigur á Betis á heimavelli sínum. Gonzalo Higuain opnaði markareikning heimamanna strax á 7. mínútu og Hollendingurinn Klaas-Jan Huntelaar skoraði tvívegis áður en gestirnir minnkuðu muninn á 30. mínútu. Flugeldasýningin á Bernabeu var fjarri því búin því Raul skoraði tvö mörk og Sergio Ramos bætti við sjötta markinu áður en flautað var til leikhlés. Sem betur fer fyrir Betis urðu mörkin ekki fleiri. Villarreal vann 2-1 sigur á Sporting Gijon og Sevilla og Atletico mætast síðar í kvöld. Staðan í spænsku deildinni
Spænski boltinn Mest lesið Bein útsending: Bakgarðshlaupið í Heiðmörk Sport Uppgjörið: KA bikarmeistari í fyrsta sinn Íslenski boltinn Veðmál systkina til lykta leitt: „Veit að ég mun aldrei tapa fyrir honum“ Sport Iðrast gjörða sinna: „Var klárlega rangt af mér“ Íslenski boltinn Sló 24 ára gamalt met Kára Steins, aftur Sport Bað börnin sín afsökunar á dánarbeðinum Fótbolti Gestirnir ívið betri en engin mörk skoruð Enski boltinn Pössuðu að leikmenn Fulham væru aldrei einar með Al Fayed Enski boltinn UEFA sé að missa þolinmæðina gagnvart Íslandi Íslenski boltinn Díaz með tvö og Liverpool tyllti sér á toppinn Enski boltinn Fleiri fréttir „Ekki jafn auðvelt og lokatölurnar gáfu til kynna“ „Við fórum beint úr því að vera ömurlegir í frábærir“ Þriðja markalausa jafntefli Juventus í röð „Það hlaut að koma að því“ Í beinni: Real Madrid - Espanyol | Þurfa að halda í við sjóðheita Börsunga Gestirnir ívið betri en engin mörk skoruð Uppgjörið: KA bikarmeistari í fyrsta sinn Rúnar Þór lagði upp og setti boltann í eigið net Willum Þór gaf stoðsendingu Fulham fyrst til að vinna Newcastle og dramatík í Birmingham og Southampton Spurs vann þrátt fyrir að lenda undir eftir hálfa mínútu Díaz með tvö og Liverpool tyllti sér á toppinn Bayern búið að skora tuttugu mörk í síðustu þremur leikjum Selfoss og KFA mætast í úrslitum Ásdís Karen skoraði í þriðja sigri Lillestrøm í röð Sjö KR-ingar heiðraðir á Anfield Orri í byrjunarliði Real Sociedad sem mistókst enn og aftur að skora Jackson í stuði þegar Chelsea fór létt með West Ham Lið Ísaks og Valgeirs bjargaði stigi á dramatískan hátt Endurkoma hjá Dagnýju „Er ekki bara kominn tími til að breyta þessu?“ Pössuðu að leikmenn Fulham væru aldrei einar með Al Fayed „Okkar að stöðva drauma þeirra í fæðingu“ Segir að Rashford hafi tekið lífsstílinn í gegn Bað börnin sín afsökunar á dánarbeðinum UEFA sé að missa þolinmæðina gagnvart Íslandi Iðrast gjörða sinna: „Var klárlega rangt af mér“ Gróðursetja tvö hundruð tré fyrir hvert skorað mark Ferguson saknar fótboltans Uppgjörið og viðtöl: Víkingur - Þróttur 1-1 | Eitt stig á hvort lið í fremur rólegum leik Sjá meira