Fótbolti

Milan varð af tveimur mikilvægum stigum

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Riise beitti ýmsum brögðum til þess að stöðva Huntelaar í kvöld.
Riise beitti ýmsum brögðum til þess að stöðva Huntelaar í kvöld.

Ekkert mark var skorað í stórleik kvöldsins í ítalska boltanum. Þá tók Roma á móti AC Milan á Ólympíuleikvanginum í Róm.

Þarna mættust liðin í öðru og þriðja sæti deildarinnar og þau eru í sömu sætum eftir leikinn.

Milan er fjórum stigum á eftir toppliði Inter en Roma er síðan þrem stigum á eftir Milan.

David Beckham byrjaði á bekknum hjá Milan í kvöld en lék síðustu 20 mínútur leiksins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×