Fótbolti

Huntelaar stendur í vegi fyrir Fabiano

Henry Birgir Gunnarsson skrifar

AC Milan ætlar sér að reyna að kaupa brasilíska framherjann Luis Fabiano frá Sevilla í sumar en það gæti reynst þrautin þyngri þar sem Hollendingurinn Klaas-Jan Huntelaar neitar að fara.

Milan er ekkert sérstaklega spennt fyrir því að halda Hollendingnum hjá félaginu enda var hann slakur síðasta vetur.

Milan ætlar ekki að eyða of miklu í sumar og því var félagið að vonast eftir því að setja Huntelaar upp í kaupin á Brassanum.

Það vill Huntelaar ekki sjá. Hann ætlar að vera áfram í herbúðum félagsins og er staðráðinn í að sanna sig hjá félaginu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×