Körfubolti

Magnús stigahæstur í sigurleik

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Magnús Þór Gunnarsson.
Magnús Þór Gunnarsson. Mynd/Daníel

Magnús Þór Gunnarsson var stigahæstur leikmanna Aabyhoj IF er liðið vann níu stiga sigur á Horsholm 79ers í dönsku úrvalsdeildinni í körfubolta í kvöld, 69-60.

Magnús setti niður sex þrista í leiknum og skoraði alls 22 stig. Hann var reyndar eini leikmaður Aabyhoj sem skoraði þriggja stiga körfu í leiknum en hann átti alls ellefu af sextán þriggja stiga tilraunum liðsins.

Hann lék í tæpar 33 mínútur og tók alls fjögur fráköst og gaf þrjár stoðsendingar. Arnar Freyr Jónsson lék ekki með Aabyhoj í kvöld vegna meiðsla.

Aabyhoj er í fimmta sæti deildarinnar með átta stig en Svendborg er á toppnum með fullt hús stiga eftir sjö leiki.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×